Jólin, jólin, jólin koma brátt...

hello, hello,
Ég er í alveg óvenju góðu skapi þessa stundina, væntanlega vegna þess að ég verslaði þessi æðislegu jólakort í dag og það eina sem mig vantar núna eru heimilisföng klemmna .Þær sem verða við ósk minni meiga búast við geggjað skemmtilegu korti, ok við skulum bara segja ágætis jólakorti, ekkert vera að pumpa þetta upp of mikið.
En líka fyrst jólin koma brátt þá þýðir það að ég kem bráðum heim eða eftir 18 daga og það verður sko gaman, jei! ég er i svo miklu jólaskapi að ég gæti barasta búið til jóla version of lúdó...hmm.
Já og allir þeir sem eiga ferð um Finsbury park næstu helgi er boðið í rífandi black tie jólaboð,,,,wow hvað ætli ég hafi nefnt jólin oft í þessari færslu, hálfgert overkill
Funda










