Smá blogg frá mér...
Takk fyrir síðast!
Þetta var voðalega skemmtilegt kvöld:)
Nú er Heiða að verða ársgömul - rosalegt hvað tíminn líður hratt.
Það er sko ekki tekið út með sældinni að eiga bara bræður en kemur sér þó vel á leikskóla:)
Hún er víst ansi hörð í horn að taka og veigrar sér ekki við því að klípa á móti.

Hreiðar fer aftur í leikskólan á morgun og ég er rosalega fegin. Ömurlegt að hafa ekki fjall og barbie-læk hérna á mölinni og friðinn frá umferð og stöðugri hættu.
Sérstaklega með svona kjarnorkubombu eins og hann.
Það verður alla vega óska staða að koma honum á legg og þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að fá nafnið hans á miða á klemmukvöldi:)
Hann verður allavega pólitíkus eða handrukkari - það er ekkert á milli :/
Annars fékk ég nokkuð undarlega heimsókn í vikunni. Hérna bönkuðu trúboðar sem voru að selja einhver dagatöl. Allt í lagi svo sem með það en þegar ég kom til dyra fékk ég spurninguna "Er mamma þín eða pabbi heima?"
Heldur vandræðalegt og það eina sem ég gat sagt var að ég væri eiginlega mamman.
En eftir þetta fékk ég svona "konukrísu" sem ég hef fengið reglulega eftir að Óli fæddist. Svona hvort að ég þurfi ekki að fara að ganga í hælum og með varalit-krísa.
Ég get bara ekki gengið óstudd á hælum.
Eins erfitt og það er að viðurkenna það þá fékk ég mér einusinni sjálfskapaða fötlun (gel-neglur) OG bleika kápu í svona krísu. Það var ekki nógu góð lífsreynsla.
Kannski þarf ég bara að fá mér einhverja skrifstofuvinnu og athuga hvort það brýst ekki út einhver varalitakerling?!!!!
Hulda

6 Comments:
At 07 August, 2007 16:58,
Anonymous said…
úff! ég á fullt í fangi með minn litla gutta :) hvað þá ÞRJÚ börn!!!
en þetta með kellukrísuna, bara vera ungur í anda ;)
gaman að líf sé komið í klemmuna!
sjáumst á leikgarði :)
At 09 August, 2007 09:29,
Anonymous said…
gott med færslu :) haha fyndid ad vera spurd eftir mömmu sinni eda pabba. frekar tad en kápan og varaliturinn! ég kannast nú adeins vid vandamálid med skort á fullordinsleika i útliti...tad kemur fyrir ad ég sé spurd hvort ég vilji barna eda fullordinsmida í strætó. og í vinnunni sést ekki munur á mér og unglingunum. eldri madur spurdi ekki fyrir löngu, er ég var á göngu med 14 stelpu úr vinnunni, hvort mömmur okkar vissu ad vid værum úti!!
já...ungleikinn er greinilega í fyrirrúmi! og tad tótt ég sé fyrir löngu farinn ad ganga med varalit!
sæt mynd af heidu. væri voda gaman ad hitta tig og alla krakkana einhvern daginn :)
-íris admin
At 10 August, 2007 18:32,
Anonymous said…
vel gert stelpur! ég hlakka til að sjá Huldu með fjóló varalit í bleiku kápunni ;)
At 11 August, 2007 13:23,
Anonymous said…
Skemmtileg færsla Hulda. Þarf Hulda ekki að fá eitthvað opinbert heiti eins og við hinar. Anyway, ættum við ekki að endurtaka grillið áður en svala fer út?
At 12 August, 2007 22:13,
Anonymous said…
Jú endilega grilla sem fyrst:)
Er hún alveg að fara?
Spurning að redda sér fjólubláum varalit áður - sá svona Wet and wild stand í Hagkaup um daginn svo það er von:)
Annars á þetta vandamál eftir að koma sér vel á fimmtugsaldrinum þó það sé pínlegt núna - kannski helst fyrir mig því Óli er orðinn svo stór að fólk fer að halda að ég hafi 11 og hálfs þegar hann fæddist.
Annars er ég með svo mikinn athyglisbrest að ég er löngu komin í aðra krísu. Þarf að skila inn umsókn um mastersnám fyrir 15. sept og get ekki valið.
Hvort er mikilvægara mamman eða börnin? (í samhenginu þá - hvort vel ég spennandi og krefjandi nám sem krefst örugglega yfirvinnu á vinnumarkaði eða móðurvænna nám þar sem vinnutími er betri?)
Dóri þoldi ekki álag spurningarinnar og neitar að svara en pabbi sagði "mamman".
Hann tekur það til baka þegar þau fara í hópmeðferð á Vog.
En ég er endilega til í grill - nú fer að koma að minni mánaðarlegu vinnutörn en væri alveg til um helgina?
Þið gætuð líka bara komið í kökuafganga til mín, verð að baka alla vikuna og baka alltaf yfir mig en ég verð með afmæli um helgina.
Hulda
At 21 August, 2007 20:01,
Anonymous said…
hahahha æi Hulda þetta er best ;) Þú verður heppnust seinna meir að vera lang unglegust ;)
æ vá alltof langt síðan ég hef kíkt hérna inn úff :) luv u girls
kv Sara Natasha
Post a Comment
<< Home