Klemman

Þar sem Klemmur koma saman er alltaf gaman...

Wednesday, July 11, 2007

Loksins!

Loksins get ég bloggað hérna:)

Sá engar fréttir um klemmugrillið og ákvað að prófa að blogga - þó það sé einfaldara að hringja þá var ég bara svo ánægð með það að geta bloggað:)
Er planið næsta eða þar næsta helgi (13, 14, 15) eða (20, 21, 22)?
Það er kannski ekki mikil hreyfing hérna í góða veðrinu svo það er kannski betra að hringja bara í vikunni:)

Ég er að vinna laugardagskvöldið 14 en er annars laus...
Annars er ég bara lítið að vinna í sumar og bara á nóttunni svo ef ykkur langar að hressa upp á taugar og þolinmæði þá er ég alltaf til:)
Er nefnilega aldrei ein heima!

Hreiðar var að byrja í sumarfríi og það er alveg ótrúlegt hvað það munar um 3 ára ósigrandi spiderman maníak.
Hann hefur bara eitt svar við uppfræðslu, hræðsluáróðri og skömmum "nei, ég fer bara í spiderman búninginn minn og geri pssstt"
Þetta svar fæst t.d. við leiðbeiningum um að fara bara yfir götu þegar græni kallinn er eða hjóla bara á gangstéttinni því bílarnir sjái svo illa 3 ára börn.
Hann er líka bara svo furðulegur - hann hefur alltaf svart við öllu og hann efast aldrei um að hann sé sterkari og betri en heimurinn þó hann sé bara rétt rúmlega 90 cm!
Uppáhaldið mitt er frasinn hans "ég er soldið 7 ára"
Svo spurði mamma hann hvað sumarfrí væri eiginlega og hann sagði "svona hálf átta"

Við erum ný komin frá Spáni og þó ferðin hafi gengið ágætlega þá er aðeins of mikið að vera með 3 börn undir 7 ára í útlöndum. Alltaf á barmi taugaáfalls yfir sundlaugum eða mögulegum barnaræningjum.
Þá er nú betra að láta bara húsdýragarðinn duga eða góða sumarbústaðarferð.

Ætli ég láti þetta bara ekki duga í bili.
Kem kannski með myndir og eitthvað fútt í þetta í næstu færslu:)
Hulda

2 Comments:

  • At 11 July, 2007 04:58, Anonymous Anonymous said…

    Hæ Hulda :)
    frábært med færslu! ég missi tví midur af klemmugrilli, jafnvel tó ég verdi stödd á íslandi dagana 16. til 23. júlí....Verd nebblega med 9 krakka hóp med mér, og verd víst eitthvad meira í taugaáfallinu yfir sundalaugarbarminum á varmárlaug (eda lágafellslaug adalmálid tessa dagana?) og gullfoss og geysi og annad eins stórhættulegt fyrir dönsk og oft á tídum ofvirk börn...
    Grill hefdi annars verid yndi mikid :)
    Gangi tér vel med Hreidar ofurmann, og hin tvö. Læt heyra í mér ef ég á séns á hittingi.
    Hvad er nr titt?

    kv. íris admin

     
  • At 11 July, 2007 16:00, Anonymous Anonymous said…

    Úfff....ertu nokkuð ein með allan hópinn?
    Heimanúmerið mitt er 5540745 og gemmsinn 6934840

     

Post a Comment

<< Home