Klemman

Þar sem Klemmur koma saman er alltaf gaman...

Tuesday, July 31, 2007

klemmurnar eru á lífi

Àgætu klemmur.
Takk fyrir sídast :) alltaf gaman tegar klemmur koma saman...
Àkvad ad skella inn örfáum myndum. Er reyndar ekki sú sem luma á bestu myndunum grunar mig. En hérna koma nokkrar.





















Og svo klemmustrákur Mikael Máni...











Takk fyrir skemmtilegt kvöld. Og einkar gott thema tykir mér ;)

Admin.

Wednesday, July 11, 2007

Loksins!

Loksins get ég bloggað hérna:)

Sá engar fréttir um klemmugrillið og ákvað að prófa að blogga - þó það sé einfaldara að hringja þá var ég bara svo ánægð með það að geta bloggað:)
Er planið næsta eða þar næsta helgi (13, 14, 15) eða (20, 21, 22)?
Það er kannski ekki mikil hreyfing hérna í góða veðrinu svo það er kannski betra að hringja bara í vikunni:)

Ég er að vinna laugardagskvöldið 14 en er annars laus...
Annars er ég bara lítið að vinna í sumar og bara á nóttunni svo ef ykkur langar að hressa upp á taugar og þolinmæði þá er ég alltaf til:)
Er nefnilega aldrei ein heima!

Hreiðar var að byrja í sumarfríi og það er alveg ótrúlegt hvað það munar um 3 ára ósigrandi spiderman maníak.
Hann hefur bara eitt svar við uppfræðslu, hræðsluáróðri og skömmum "nei, ég fer bara í spiderman búninginn minn og geri pssstt"
Þetta svar fæst t.d. við leiðbeiningum um að fara bara yfir götu þegar græni kallinn er eða hjóla bara á gangstéttinni því bílarnir sjái svo illa 3 ára börn.
Hann er líka bara svo furðulegur - hann hefur alltaf svart við öllu og hann efast aldrei um að hann sé sterkari og betri en heimurinn þó hann sé bara rétt rúmlega 90 cm!
Uppáhaldið mitt er frasinn hans "ég er soldið 7 ára"
Svo spurði mamma hann hvað sumarfrí væri eiginlega og hann sagði "svona hálf átta"

Við erum ný komin frá Spáni og þó ferðin hafi gengið ágætlega þá er aðeins of mikið að vera með 3 börn undir 7 ára í útlöndum. Alltaf á barmi taugaáfalls yfir sundlaugum eða mögulegum barnaræningjum.
Þá er nú betra að láta bara húsdýragarðinn duga eða góða sumarbústaðarferð.

Ætli ég láti þetta bara ekki duga í bili.
Kem kannski með myndir og eitthvað fútt í þetta í næstu færslu:)
Hulda