Smá blogg frá mér...
Takk fyrir síðast!
Þetta var voðalega skemmtilegt kvöld:)
Nú er Heiða að verða ársgömul - rosalegt hvað tíminn líður hratt.
Það er sko ekki tekið út með sældinni að eiga bara bræður en kemur sér þó vel á leikskóla:)
Hún er víst ansi hörð í horn að taka og veigrar sér ekki við því að klípa á móti.

Hreiðar fer aftur í leikskólan á morgun og ég er rosalega fegin. Ömurlegt að hafa ekki fjall og barbie-læk hérna á mölinni og friðinn frá umferð og stöðugri hættu.
Sérstaklega með svona kjarnorkubombu eins og hann.
Það verður alla vega óska staða að koma honum á legg og þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að fá nafnið hans á miða á klemmukvöldi:)
Hann verður allavega pólitíkus eða handrukkari - það er ekkert á milli :/
Annars fékk ég nokkuð undarlega heimsókn í vikunni. Hérna bönkuðu trúboðar sem voru að selja einhver dagatöl. Allt í lagi svo sem með það en þegar ég kom til dyra fékk ég spurninguna "Er mamma þín eða pabbi heima?"
Heldur vandræðalegt og það eina sem ég gat sagt var að ég væri eiginlega mamman.
En eftir þetta fékk ég svona "konukrísu" sem ég hef fengið reglulega eftir að Óli fæddist. Svona hvort að ég þurfi ekki að fara að ganga í hælum og með varalit-krísa.
Ég get bara ekki gengið óstudd á hælum.
Eins erfitt og það er að viðurkenna það þá fékk ég mér einusinni sjálfskapaða fötlun (gel-neglur) OG bleika kápu í svona krísu. Það var ekki nógu góð lífsreynsla.
Kannski þarf ég bara að fá mér einhverja skrifstofuvinnu og athuga hvort það brýst ekki út einhver varalitakerling?!!!!
Hulda