Klemman

Þar sem Klemmur koma saman er alltaf gaman...

Wednesday, November 08, 2006

Funda Live Update

Hey klemmurnar mínar! Allt gott að frétta frá London. Eins og þið vitið þá fann ég heimili skólaársins. Það er þetta æðislega hús við Finsbury park sem er barasta rétt hjá skólanum. Þetta er afskaplega alþjóðlegt, bandaríkjamenn, finnar, belgar, rússar, slóvakar, bretar og íslendingar allir undir sama þaki og það eru allir að læra eitthvað voða mikið "give back to society" á meðan ég er kannski í svona öllu hégómlegra námi þar sem helstu áhyggjur eru hvað ég ætla nú að hafa þessa glugga háa. Húsið er risa stórt svo það er nóg pláss fyrir klemmur sem vilja kíkja í heimsókn. Annars er ekkert stórmerkilegt að frétta. Skólinn komin á fullt skrið svo það gefst lítill tími til að njóta borgarinnar og allt sem hún hefur uppá að bjóða en maður reynir nú bara að troða því svona inn á milli. Mamma er reyndar að koma í heimsókn á morgun svo það verður varla litið á tölvu eða í skólabók á meðan.
Jæja, ég held að ég sé hér með búin að uppfylla Live Update skyldur mínar en ég lofa að það mun ekki líða eins langt til næstu færslu.

Funda aka Master of ceramony

5 Comments:

  • At 08 November, 2006 12:38, Anonymous Anonymous said…

    hey skvís :) gaman að frétta frá london! yndisleg borg!!! gangi þér vel í skólanum ;)

     
  • At 08 November, 2006 19:14, Anonymous Anonymous said…

    góð.. þú varst ekki síðust.. losnar við að sleikja krika að sinni

     
  • At 08 November, 2006 22:39, Anonymous Anonymous said…

    Úfff...ætla að drífa mig.
    Gott að heyra aðeins frá London!
    Ég er svo London sjúk að það nær engri átt. Komið ár síðan ég var þar síðast og ég er að deyja.
    Freistaðist næstum því um daginn til að skella mér með vinkonu minni og taka bara frímerkið með.
    En svo áttaði ég mig á því að maður er nú bara einu sinni í lífinu 2 mánaða og það er sko nógur tími til London skreppa þegar hún verður aðeins stærri!!
    Alveg glötum mamma.
    ;) Hulda

     
  • At 09 November, 2006 09:43, Anonymous Anonymous said…

    Haha, skil vel þetta London æði. Ótrúlega skemmtileg borg. Þú verður svo bara að láta mig vita næst þegar þú ert stödd hérna.

     
  • At 09 November, 2006 16:07, Anonymous Anonymous said…

    Gott ad fá loksins ad heyra af nýja heimilinu! og af lífinu í london svona almennt. Fín færsla hér á ferdinni :)

     

Post a Comment

<< Home