Klemman

Þar sem Klemmur koma saman er alltaf gaman...

Saturday, November 04, 2006

Webbi Live Update!

Heilar og sælar. Nú vil ég skora á allar Klemmur að skrifa smá um við hvað þær er að sýrsla þessa dagana undir yfirskriftinni "(nafn viðkomandi Klemmu) Live Update!". Ég skal byrja.

Allt fínt er að frétta af mér. Svo fyrir utan það að ég er gjörsamlega að MORKNA í vinnunni. Annars er lífið í Mosfellsbænum nokkuð ljúft bara.

Þið verðið að afsaka bloggleysi mitt. Ég er búin að vera nokkuð virk í sociallífinu. Ekki að það afsaki þetta. Maður verður að kunna að forgangsraða hlutunum! Airwaves var um daginn með biluðu djammi og öllu sem því tilheyrir. Mjög skemmtilegt það.

Annars þekki ég Klemmurnar mínar vel og veit að þær eru alltaf til í djús svo ég skal gefa ykkur smá fix. Þannig er mál með vexti að ég smitaðist nýlega af stórhættulegum sjúkdómi er nefnist Latino-fever. Engar áhyggjur. Ég er viss um að ég læknist af þessu von bráðar. Annars þurfið þið heldur ekki að lifa í ótta um að smitast af þessum hörmulega sjúkdómi þar sem þið eruð flestar svo langt í burtu og við sem erum á Íslandi erum ekki beint duglegar við að hittast... En já... svona er lífið víst. Ef maður fer ekki varlega getur maður smitast af öllum fjandanum.

Svo lenti ég í þeim undarlegu aðstæðum fyrr í dag að ég fór í sakleysi mínu á bensínstöð og bensín afgreiðslumaðurinn reyndi mjög hressilega við mig. Lét mig fylla út Safnkorts umsókn og fór mörgum orðum um ágæti þess korts. Svo þegar ég afhenti honum þetta sagði hann: "Núna er ég með símanúmerið þitt.. mig langar rosalega mikið að hringja í þig og tala við þig ef manninum þínum væri sama!? má ég það?" og ég alveg: "haa... öhm.. NEI!". Sheesh! ég veit ekki með ykkur en mér fannst þetta mjög óviðeigandi og alls ekki sæmileg hegðun. En fólk er nú svo misjafnt...

Ætli þetta sé ekki fínt í bili. Ég biðst afsökunar á hversu loðið sumt sem ritað er hér að ofan er... En ég tel það hvetja til Klemmuvirkni...?

-Webbi

3 Comments:

  • At 04 November, 2006 14:50, Anonymous Anonymous said…

    Frábær færsla. En jú wow mér finnst þessi gaur hafa farið svolítið yfir strikið. Og já hvað segirðu? Hvernig svo lýsir þessi latino-fever sér, vil bara vera alveg örugg um að ég sé ekki haldin neinu slíku

     
  • At 05 November, 2006 15:35, Anonymous Anonymous said…

    gód færsla tetta kæri webbi. Tek undir med fundu, hvernig lýsir feverinn sér?

     
  • At 05 November, 2006 15:35, Anonymous Anonymous said…

    gód færsla tetta kæri webbi. Tek undir med fundu, hvernig lýsir feverinn sér?

     

Post a Comment

<< Home