hæ klemmurnar mínar :)
þar sem ég er ekki að vinna sökum steina kallsins þá eyði ég kannski aðeins of miklum tíma í internet-ráf...að skoða allskonar drasl (í staðin fyrir að skipuleggja fæðingarorlofsmál og fleira aðkallandi í sambandi við barneignir), stökum sinnum rekst maður þó á gullmola eins og þennan ;) ég skora á ykkur að tékka á þessari yndislega fyndnu kisu! hvaða tilfinningar ætli hún sé að upplifa?
p.s þið sem eruð á landinu! ekki vera feimnar við að kíkja í heimsókn til bollunnar í skaftahlíðinni :)
kveðja, áskoranastjórinn ykkar
***
p.s þið sem eruð á landinu! ekki vera feimnar við að kíkja í heimsókn til bollunnar í skaftahlíðinni :)
kveðja, áskoranastjórinn ykkar
***


13 Comments:
At 20 October, 2006 20:28,
Anonymous said…
Góda helgi sæta mín.
Snidug kisan tessi... ;)
vildi ég gæti kíkt í heimsókn í skaftahlídina.
kvedja frá admin í køben
***
At 22 October, 2006 17:25,
Anonymous said…
Úff ekki gaman að vera svona föst heima:(
Annars er tíminn svo fljótur að líða að þú verður komin með kríli í hendurnar áður en þú veist af og vonandi losnaru við steina.
Annars langar mig að skjóta því að þér að reyna að eiga það á fjórum fótum ef þú mögulega getur (kannski búin að stúdera þetta heil mikið:).
Ég gerði þau mistök í fyrstu tvö skiptin að reyna að þræla mér í gegn um þetta eins og vestrænni konu sæmir - á bakinu og þurfa þá ekki aðeins að ýta út 3,5 kíló barni á vöðvaaflinu einu saman heldur vinna gegn alheimslögmáli þyngdaraflsins líka.
Þessvegna skellti ég mér á fjóra núna og ég sver það - tveir rembingar.
ATH - viðkvæmir hætti að lesa:)
Það sem meira er að ég rifnaði ekki bofs. Leið bara eins og ég hafi hreint ekkert verið að fæða barn bara daginn eftir. Það má nú færa rök fyrir því að 3 barn á 6 árum hafi haft þar meira að segja. Eflaust eitthvað en Hreiðar fæddist samt á jafn skömmum tíma og ég rifnaði samt svipað og með Óla. Svo átti vinkona mín fljótlega á eftir mér fyrsta barn á fjórum og rifnaði heldur ekkert. Hef heyrt að í þessari stöðu sé jafnari þrýstingur á spöngina og því minni hætta á að hún rofni.
Nú verkjar örugglega einhverjum lesanda í klofið heheheh...
Svo er bara málið að vera ákveðin og frek á það hvernig þú villt hafa þetta. Addi bróðir og Magga áttu nú í sept. - voða rómó í kertaljósi í Hreiðrinu - þangað til í miðjum rembingi og fullri útvíkkun komu vaktaskipti! Ljósan fór bara og hinar sem komu á vakt neituðu að taka á móti í Hreiðrinu, svo Magga var sett í hjólastól og keyrð inn á fæðingargang, en á leiðinni varð barnið ferlega stressað og þetta endaði í panikki og sogklukku.
Hélt ég mundi bilast þegar ég heyrði þetta. Svo er drengurinn að drepast úr fæðingarstreytu en þó allur að koma til eftir höfuðbeina og spjaldhryggsjöfnun.
Úff...aðeins of mikil ritgerð kannski:)
Annars er ég alveg til í að þiggja þetta lykilorð sem Webbi lofaði mér um daginn:)
Voðalega líður tíminn annars. Jólin bara að koma. Ég er með svo mikla fæðingarþoku að ég á örugglega eftir að gleyma að undirbúa þau. Fattaði á fimmtudaginn að ég væri í heimaprófi sem hófst á þriðjudag! Það er reyndar í viku svo það sleppur en sjokkerandi samt.
Verð að fara að hætta þessum barneignum svo ég endi nú ekki alveg heilalaus....:S
Hulda
p.s. Óska eftir afriti af júróvision spólunni ef einhver á - minnir að við höfum kóperað hana en mín er týnd. Æ - þarna "Karen-Karen og af hverju að kaupa eina flösku þegar tvær eru nóg - ég kaupi ekki wash and go" hvað var það eiginlega sem okkur þótti líkt með Bjarna Ara og Webba?
At 22 October, 2006 21:37,
Anonymous said…
sælar íris mín :)
vona einnig að helgin þín verði góð!
***
og blessuð hulda :)
ég þakka góð ráð og mun íhuga þau heilshugar! enda reynd kona sem gefur þau ;) gangi þér vel með skarann þinn og prófið mikla!!! væri gaman að þú fengir lykilorðið á klemmuna góðu, góður penni hér á ferðinni ;) get sent þér það ef þú gefur upp e-mail adressuna þína (kannski í sms-i til mín...s:8668373)
gaman að heyra frá þér!
At 23 October, 2006 11:46,
Anonymous said…
jí dúdda! ég er vel aum í klofinu eftir tessar lýsingar! úff. en án vafa rád sem koma sér vel fyrir bumbukonuna okkar :)
Endilega fádu lykilordid hjá Hröbbu. Lýst svakalega vel á tad :)
vardandi GG...veit ekki hvort ég hafi einhvern tímann fengid spólu? get kíkt næst tegar ég er á íslandi, gæti vel verid ad ég lumi á tessu einhversstadar...
og já, tad er spurning hvad bjarni ara og sólveig eiga sameiginlegt...
At 23 October, 2006 12:46,
Anonymous said…
Hahaha.. já verð að viðurkenna það að ég gleymdi aðeins Klemmunni góðu yfir airwaves en gleður mig að sjá að það hefur verið líf hér engu að síður!
Ég vona að Hulda sjái þessi comment því það væri crazy cool að fá hana í hópinn! Rosalegar þessar fæðingarlýsingar. Mauður ætti kannski að vera að taka glósur hérna og geyma í brunavörðu boxi einhversstaðar! Well.. já en Hrafnhildur mín þá vona ég að þú sért á baravegi. Ég og Berglind kíkjum vonandi á þig í vikunni. Ég er reyndar upp í rúmi með pest eftir tja.. já 4 dagafyllerístörn. Maður er greinilega að verða eitthvað slappur með árunum fyrst maður að hætttur að þola það og ónæmiskerfið komið alveg í keng.
Já svona er þetta.. hressandi mjög!
At 23 October, 2006 13:53,
Anonymous said…
já þetta eru ansi skemmtilegar lýsingar hjá henni huldu og vonast ég til að fá fleiri ráð áður en að fæðingunni kemur! kannski við hulda tökum okkur bara saman og höfum svona meðgöngu- og fæðingaráðgjafahorn ;)
og webbi minn! þið berglind eruð hjartanlega velkomnar hvenær sem er! reynum að finna góðan tíma við tækifæri :) hafðu það gott í þynkunni...spurning hvort hún lengist ekki bara með aldrinum...? hehe!
At 24 October, 2006 03:29,
Anonymous said…
Já, ég er sko alveg til í lykilorðið og það má senda það á huldahre@hi.is ;)
Fyndið hvað ykkur finnst þetta rosalegar lýsingar því ég þurfti virkilega að halda aftur af mér hehehe:)
Annars er þetta í alvöru ekkert stórmál - kannski ekki þægilegt allavega í fyrsta skiptið en samt bara nokkrir klukkutímar af lífinu og maður fær það margfalt borgað til baka. Svo er þetta bara skemmtilegt þegar maður er kominn með smá reynslu. Hlakkaði bara virkilega til núna síðast að prófa eitthvað nýtt og takast á við hríðarnar:) Skil ykkur samt mjög vel því ég man hvað ég var kvíðin fyrst.
Það er alveg ótrúlega skrítið að eiga 3 börn. 1 er ekkert mál, 2 eru viðráanleg en þegar þau eru orðin 3 þá langar mann helst í talstöðvakerfi í öll herbergi því það er svo þreytandi að æpa í allar áttir. Líka skrítið þegar við settum þau öll í bílinn í fyrsta skiptið. Hrikalega margt fólk eitthvað. Fer að þurfa frystikistu og skrokka.
Loksins búin að skila þessu heimaprófi og heilinn alveg í mauki. Tekur á að reyna að sannfæra kennarann um síðustu heilasellurnar.
Svo kemur Dísa heim frá Köben á morgun - skellti sér með Rósu frænku að versla svolítið og skella sér í Tívolíið:) Hún verður tvítug í nóvember?! Hvernig gerðist það? Svo googlaði ég Benna og Andra sem ég var að passa í Krókabyggðinni og komst að því að Andri er á öðru ári í MH?!?!
Tíminn líður alveg rosalega.....
Ég verð komin á eftirlaun áður en ég drulla mér út á vinnumarkaðinn!
Hulda
At 24 October, 2006 08:52,
Anonymous said…
Líst vel á horn Hrafnhildar og Huldu specialista í fædingum...
Ég tjáist sjálf af ótta vid fædingar og ungabörn. Smá svona ábyrgdarfælni held ég. Ætli ég vaxi ekki uppúr tví einhvern daginn.
Er sammála tér Hulda um ad tíminn lídur skuggalega...Fólk er ordid fullordid ádur en madur veit af! Agla ösp systir mín er á 1. ári í MH núna. Og mér finnst vid bara nýbúnar ad vera í menntó...Svakalegt.
Get ímyndad mér stórfjölskylduna tína. Væri gaman ad heimsækja ykkur vid tækifæri:) Og tid turfid bara ad koma med eitt í vidbót, og tá komist tid ekki í venjulegan bíl, og turfid ad eiga svona spes big family sise eins og mamma og svenni áttu á tímabili...
Gangi tér vel med tetta allt saman:)
Ertu komin med lykilordid? ég sendi tér tad núna...
At 24 October, 2006 21:20,
Anonymous said…
Sælar stúlkur ég veit ég ætti örugglega að fara að sleikja handakrika bráðlega en vona að þetta sleppi... athygglisverðar umræður um barneignir, er sammála Sólveigu um að taka glósur og geyma þar til þar að kemur :)
Var að fylgja Hákoni á flugvöllin í gær og það er alltaf jafn leiðinlegt... maður mundi halda að þetta vendist svona með tímanum en því miður!
Er að spá í að skella mér til landsins góða í norðri eftir rúmar 2 vikur svona bara í helgar heimsókn væri kannski gaman að hafa klemmukaffihúsaferð, hvað finnst ykkur? :)
At 24 October, 2006 22:05,
Anonymous said…
JÁÁÁÁÁ! veiveiveivei.. haha.. já ég er alla vegana til :)
At 24 October, 2006 22:59,
Anonymous said…
Skil vel að það sé ekki spennandi að þurfa að búa svona í sundur.
Kaffihúsaskrepp er mjög góð hugmynd!:)
Ég er allavega til.
Þyrfti reyndar að taka frímerkið með mér. Það er svo erfitt að skilja brjóstin eftir heima;)
Þið gætuð líka bara kíkt heim til mín. Opið allan sólarhringinn:)
Hulda
At 25 October, 2006 14:42,
Anonymous said…
Ógeðslega gaman að sjá hvað allir eru activ og fjör að Hulda hafi bæst í hópinn. Hrabba, þessi kisa er æði
At 25 October, 2006 18:50,
Anonymous said…
ég er meira en til í klemmuhitting! meira en til :)
Post a Comment
<< Home