Klemman

Þar sem Klemmur koma saman er alltaf gaman...

Monday, September 25, 2006

London calling...

Jæja þá er sumarfríið búið hjá mér í bili. Ég vil þakka klemmukonum fyrir frábært sumar og ég vil að auki þakka dyggum stuðningsmönnum Klemmukvenna, þeim Guðmundi og Elísabetu í Reykabyggð 23. Það var nú margt skemmtilegt aðhafst í sumar t.d rolluferðin góða, grill á Þingvöllum, í Mosfellsbæ og upp í Breiðholti. Lúdó skúdó var spilað lon og don og í neyð var jafnvel náð í snákaspilið góða sem reyndist vafalaust gott til uppeldis hér á árum áður. En þið sem að lituð aldrei það góða spil augum þá gengur það út á að kenna krökkum lexíur eins og ef þú stelur smáköku þá verðurðu rassskellt og ef þú stríðir dýrum verðurðu rassskellt og þar frameftir götunum, einstaklega upplífgandi spil. Það var dansað upp á stólum, kvartað undan drengjum sem ekki virtust vera hrifnir af skotum og jeminn hvort það hafi ekki verið dreginn dani á nánast hvert einast djamm.
Anyways, skemmti mér konunglega í sumar og ég vona að klemmukonur hittist nú aftur næstu jól og þá kannski allar saman.


Takk fyrir mig


















Fundarstjóri

4 Comments:

  • At 25 September, 2006 23:20, Anonymous Anonymous said…

    Halló!
    Var að losa geymsluna hjá mér og rakst á ansi rykfallna svarta skjalatösku.
    Hún hefur fengið að hvíla nokkuð óáreitt og er full af gömlu GG-drasli, bekkjarpésa og náttúrulega eintökum af eðalblaðinu sem kennt var við síma.
    Datt þessvegna í hug að googla ykkur og átti ekki erfitt með að finna Söru ofurbloggara og svo þessa síðu hjá henni.
    Það er nú ekki komið ár frá því ég sá nokkrar síðast en í sjálfu sér ár og aldir frá því ég átti í einhverjum samskiptum við ykkur.
    Það er hálf skrítið hvað mér hefur tekist að skipta þessu lífi í ólíka hluta.
    Ég hef líka svo oft talað um kaffiboð eða grill sem ég hef svo aldrei fundið tíma til að standa við. Ferlega lélegt.
    Ef þið eruð eitthvað á ferðinni þá er velkomið að kíkja við hérna í Kafavoginum því ég er enn og aftur komin í fæðingarorlof:)
    Ég þori nú varla að bjóða í jólakaffi því ég er svo léleg að fylgja svoleiðis eftir en það væri nú samt gaman að fara í gegn um töskuna yfir smákökujapli.
    Jæja.....læt þetta nú duga í bili;)
    Msn-ið mitt er bara gamla klassíkin brosandi@hotmail.com
    Hulda H

     
  • At 26 September, 2006 11:55, Anonymous Anonymous said…

    CRAZY COOL blogg Inga.. man hvað þetta sumar var ELECTRICAL SHOCKED og hvað ég á eftir að sakna þín. Mér þykir rosalega leitt að sjá þig fara og kveð ég þig hér með formlega með trega miklum og klökkri röddu (sem þú getur reyndar ekki heyrt í gegnum þessi skilaboð (og er það mikill missir fyrir þig)) því það þarf auðvitað að skjalfesta allt svona.
    Við vorum góðar saman í sköndölunum ;) Einnig vil ég benda þér á að Velvakandi er með email...
    Lifi Beverly Hills!

    Gaman að heyra í þér Hulda og vil ég stinga upp á því að þú fáir notendanafn og lykilorð á síðu þessa svo þú getir tekið þátt í gleðinni! Ef þú hefur áhuga...? Við sem eftir erum á klakanum ættum að hafa hitting finnst mér og mig klægjar í fingurna við tilhugsununa að komast í GG-skjöl!

    Enn og aftur vil ég svo senda Klemmum tóninn fyrir virknisleysi og spurning hvort ekki sé kominn tími til að sleikja handarhrika...?

     
  • At 26 September, 2006 14:06, Anonymous Anonymous said…

    hæ inga mín! rosalega gaman að sjá þig í sumar :) gangi þér sem best í london!¨

    og sólveig mín, þú átt þessa nafnbót svo innilega skilið...mjög dugleg klemma þar á ferð ;) ég biðst vægðar á bloggleysi mínu um leið!

    og hulda :) gaman að lesa commentið þitt og til hamingju með prinsessuna!

     
  • At 27 September, 2006 08:35, Anonymous Anonymous said…

    Hæ elskurnar mínar.

    Flott blogg tetta.
    Hafdu tad sem allra allra best i london elsku Inga mín. Túsund takkir fyrir frábæra kvöldstund í sumar. Tú er bestust í ad gera grettur med bingókúlur á tönnunum, sem og í svo mörgu ödru ;)
    Verdum ad vera duglegar vid ad funda online, fundarstjóri!

    Kæra Hulda, svakalega gaman ad heyra frá tér. Tek undir med Sólveigu webba, um ad tú fáir notendanafn og lykilord á sídu tessa, ef tú ert áhugasöm.
    Èg væri meira en mikid til í ad komast í GG skjöl. Spennandi. Get tó engu lofad um komu mína til íslands næstu jól. En væri afar mikid til í hitting. Og ad fá ad sjá litlu prinsessuna ykkar :) til hamingju aftur med hana.

    Já webbi...heldur betur tímabært fyrir handakrikasleik! vid ættum ad skammast okkar! bara svo erfitt ad koma beint eftir mega færslu klemmu mánadarins ;)

    Mér tykir Hrafhildur forföllud (munid eftir tessu ordi í sundtímum í gamla daga?) med meiru gagnvart bloggi, tar sem gengur hún med barn og gallstein. Bestu kvedjur til tín elskan mín. Hugsa til ykkar.
    ***

     

Post a Comment

<< Home