Klemman

Þar sem Klemmur koma saman er alltaf gaman...

Monday, September 11, 2006

sælar klemmukonur

Ég verð að byrja á að lýsa yfir fávisku minn hvað varðar tölvur. Ég vissi ekki að maður þyrfti að ýta á refresh takkan þannig að ég var föst í fortíðinni ansi lengi eða þar til Íris kom í heimsókn um helgina og sýndi mér trikkið...... ja ja tölvur eru ekki mín sérgrein :)

En ég tek áskoruninni og skrifa hér aðeins um lúdó kveldið góða.
Við vorum sem sagt heima hjá mér að J.M. Thielesvej og byrjuðum kvöldið á að elda fínerís spagettí og drekka smá bjór með. Svo blönduðum við mohito í skál, þar sem glösin voru svo lítil að það tók því ekki að blanda í þau. Svo við drukkum mohito-bollu með miklum sykri (sem stundum þurfti að briðja). Þegar mohito-bollan var tilbúin var komið að lúdó-skúdó, sem flestar okkar erum farnar að kannast við, og vil ég þakka Ingu og Sólveigu kærlega fyrir skjót viðbrögð og góðar reglu útskýringar. Við áttum ekkert lúdó borð svo það var búið til á staðnum og verður verðveitt til frekari lúdó spilana. Þetta var einsaklega skemmtilegt spil og mikið drukkið og sungið aðsjálfsögðu. Gleðibankinn var þemalagið og það getur náttúrulega ekki klikkað ;) einnig náðum við í nokkur Bubba lög á netinu og rákumst á þessa líka skemmtilegu söngbók sem var sungin öll eins og hún lagði sig, líka lögin tileinkuð þrettándabrennum. Verð að viðurkenna að ég finn svolítið til með nágrönunum, efast um að þeir hafi skemmt sér eins vel og við. En við sem sagt drukkum og sungum og spiluðum og drukkum meira til klukkan hálf sjö um morguninn, afar skemmtilegt :)

Svala dónadrottning

ps. ég mæli með ópal skotum fyrir alla kvefaða og hóstandi

3 Comments:

  • At 11 September, 2006 22:58, Anonymous Anonymous said…

    Sérdeilis frábær færsla hjá þér Svala mín. Er ánægð að heyra að þið hafið greinilega haft jafn gaman af Lúdó og ég og Sólveig. Og mér líst vel á að syngja áfram eftir að leiknum lýkur, kannski að maður prófi það. En jæja nú er búið að spila leikinn góða í Köben og næst er það London og síðan mun hann taka yfir heiminn! Muhahaha!!!!

     
  • At 11 September, 2006 23:38, Anonymous Anonymous said…

    Já vel af sér vikið dónadrottning kær. Mikið gleður það mig líka að þið skuluð kunna gott að meta. Reyndar held ég að það sé það sem einkenni okkur Klemmurnar sérstaklega.. þ.e. að við kunnum allar gott að meta enda smekkmanneskjur miklar!

    Einnig er þetta frábær frumraun í bloggi og ég vona að þú munir halda svona áfram. Goooo Svala!

     
  • At 12 September, 2006 16:12, Anonymous Anonymous said…

    einkar gott blogg tetta hér á ferdinni mín kæra svala. Kveld tetta gæti verid öllum klemmum til stolts. Enda ekki tekid lítid á tví í spilamennskunni og skemmtilegheitum. Hlakka til næsta lúdó skúdó.

     

Post a Comment

<< Home