Klemman

Þar sem Klemmur koma saman er alltaf gaman...

Monday, November 06, 2006

áskoranastjóri live update

Hvað er eiginlega að verða um naflann minn?

sælar klemmur. er asskoti ánægð með þessi live update sem komin eru! og einnig ansi forvitin um þennan fever hennar sólveigar ;) get ekki verið minni klemma en svo að koma með mitt eigins live update þó ekki sé nú mikið um að vera hér á bæ...ja, nema í leginu mínu :) er enn heima frá vinnu, drekk svosem 2-3 lítra af vatni á dag til þess að halda honum steina í skefjum og gengur það bara ansi vel enn sem komið er! meðgögnusundið búið og núna er ég að reyna að komast að einhversstaðar í meðgöngujóga...bara verst hversu ótrúlega margar eru óléttar á íslandi í dag! varla þverfótað fyrir bumbum :)svo eru það bara fæðingarorlofspælingar...er svo ótrúlega hjátrúafull að ég á erfitt með að hugsa svona langt fram í tímann! vil bara fá barnið í hendurnar áður! en það er víst ekki hægt. eitthvað verður víst að undirbúa komu þessa litla skinns! væri annars gaman að hittast þegar svala kemur til landsins!!! koma svo klemmurest! hvað er um að ske í ykkar lífi???

2 Comments:

  • At 06 November, 2006 20:52, Anonymous Anonymous said…

    Vá.. svaka góð bumba sem þú ert komin með væna mín! og naflinn.. það er engu líkara en að holan nái í gegn..? Við kíkjum á ykkur þegar Svala kemur!

     
  • At 07 November, 2006 11:55, Blogger Klemmur said…

    flott bumbumynd! of flott update :)
    -Admin

     

Post a Comment

<< Home