Klemman

Þar sem Klemmur koma saman er alltaf gaman...

Thursday, August 10, 2006

Þennan gaur ættum við að taka til fyrirmyndar...

Veröld/Fólk | AFP | 4.8.2006 | 14:06

Lengsta ljóð í heimi

Þrítugur Frakki opnaði í dag sýningu á því sem hann sagði vera lengsta ljóð í heimi. Ljóðið er nærri 7600 erindi og skrifað á klæðisstranga, sem er nærri eins kílómetra langur.

Patrick Huet, sem er bókari að aðalstarfi, var í einn og hálfan mánuð að yrkja kvæðið sem nefnist: Vonarglæta í bergmáli heimsins. Hann var síðan í mánuð að skrifa ljóðið á léreftið, sem lagt var á kappakstursbraut í suðausturhluta Frakklands í dag.

Ljóðið er ort undir svonefndum gripluhætti þar sem fyrstu stafirnir í hverri línu mynda orð. Með þessum hætti eru allar 30 greinar Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna greyptar í kvæðið.

„Ljóðið sprettur af mikilli innri þörf, brennandi þrá eftir að tjá mig um þær hræðilegu hörmungar sem mannkynið hefur þurft að þola," sagði Huet.

Sérstakur dómskrifari staðfesti lengd kvæðisins og verða upplýsingarnar senda til Heimsmetabókar Guinness.

Huet hefur þegar skrifað tvö styttri kvæði, annað 66 metrar og hitt 72 metrar.


(Séð á mbl.is)

-Webbi

5 Comments:

  • At 10 August, 2006 17:42, Blogger Ìris said…

    Snidugur gutti tetta. Alveg í okkar anda. Nema hvad okkar ljód vilja oftar snúast um stóra bjóra eda tippi...
    En samt. Sami stíll. Vid tökum líka alveg á stærri vandamálum heimsins inná milli.

     
  • At 10 August, 2006 18:00, Anonymous Anonymous said…

    Að mínu mati eru stórir bjórar alveg eins mikilvægir og mörg vandarmál heimsins. Án þeirra væru flest okkar ekki til og þá væri nú enginn hér í heimi til að yrkja um ekki neitt..

     
  • At 10 August, 2006 18:10, Anonymous Anonymous said…

    "Stórir bjórar OG typpi" átti þetta nú að vera... og hugsið ykkur að án typpa væri ENGIN af okkur hér!

     
  • At 11 August, 2006 13:13, Anonymous Anonymous said…

    híhí typpi :)
    oh, þessi síða er æði...gullmolarnir alveg hrannast inn! þessi þrjú komment hér að ofan eru mín uppáhalds hingað til ;)

     
  • At 11 August, 2006 21:14, Anonymous Anonymous said…

    já "bara danskur í dag" (bdd), og adrar eins setningar med kinký raunverulegum týdingum...Webbi, lumaru nokkud á ordalistanum góda frá í fordum daga á ircinu?

     

Post a Comment

<< Home