Klemman

Þar sem Klemmur koma saman er alltaf gaman...

Tuesday, July 25, 2006

Hæ hó Bloggdrottningin og the special star mætt ;)

Hæ elskurnar mínar þá er að prufa að koma inn hérna færslu eftir margar áskoranir. Ég get blaðrað endalaust en því miður hef ég ekki þessa ljóða snilligáfu eins og meirihluta þessa hóps að vellta snildarljóðum út en talað get ég og það er það sem ég læt hér á reyna.
Eins og stelpurnar mínar vita þá er ég þessi músí knúsí linkurinn í þessum hóp voða sentimental en á móti kemur ábyggilega mesta fíflið með vandræðalegar sögur af sjálfri mér sífellt að fíflast og það er það sem þið getið búist við.

Ég hreinlega elska þenna fríða stelpuhóp minn sem er reyndar dreifður útum allan heim :( Við erum æði ;) hahahah
Ég var einmitt að hugsa um daginn hvað ég sakna ykkar allra svakarlega mikið og get ekki beðið eftir að hitta ykkur sem heima eruð :)
En byrjum á byrjuninni hópurinn okkar er yndislegur og samanstendur af svoo ólíkum típum og það er það sem er svo geggjað við hann:)

Nanna, Sólveig, Inga Karen, Íris Þöll, Hrafnhildur og Svala ásamt Huldu voru allar held ég frá upphafi saman í bekk ;) Búnar að vera vinkonur forever ;)Ég kom hins vegar inn í þennan hóp 10 ára en þá hitti hana Írisi Þöll mína á Mallorca í sundlauginni og spurði hvort henni hefði ekki langað til að dansa kvöldið áður ;) stór furðulegt barn ;) áður en við vissum vorum við orðanar algjörar samlokur sem hefur haldist síðan þá. Þegar ég var svo 11 flutti ég í hina góðu Mosó ;) og kynntist restinni af the crew ; ) Þessi stórskrítna stelpa sem sagðist sko getað sungið eins og Elvis og Sigga Beinteins hahah hefur fylgt þessum hóp frá því.
Eva snúlla var svo með Írisi í kvennó og bættist í hópinn góður meðlimur þar á ferð enda Yndisleg stelpa í húð og hár og ekkert smá klár ;)

Nanna er þessi svakarlega hæfileikaríka stúlka sem getur allt ;)
Hún vaknar einn daginn og ákv að hún vilji spila á gítar og það gat hún svo ákv hún að mála ;) Ekkert mál fyrir Jón Pál ;) Nanna hefur alltaf verið góð í því sem hún tekur sér fyrir hendur hvort sem það sé list, músík eða íþróttir stelpan var bara góð í öllu. Nanna er traust og trygg og er sko til staðar þessi elska og þvílíkt bara GÓÐ vinkona og við elskum hana allar ;)

Næst er það hún Sólveig babe humm skemmtilegri týpu finnuru ekki ;) Sólveig er svoooo góð og þú veist alltaf hvar þú hefur hana þú þarf sko aldrei að vera stressuð um að hún sé eitthvað fúl hún skilur allt. Sólveig fann upp á mörgum uppátækjunum og var alltaf gaman að vera með henni. Mér eftst í minni er þegar hún tók sokkabuxnadansinn ;) Vorum allar saman í sumó og hún í ullarbuxum af afa hennar að dansa eins og trillt kona ;) hahaahh þvílíkt fyndið :) Sólveig er þvílíkt trygg og skemmtileg stelpa. Ekki annað hægt en að elska hana :0)

Hún Inga Karen mín er svo næst sú skvísa er einstaklega góð í ljósmyndun og allt sem við kemur stíl og arkitekt enda er hún tískudrottningin okkar ;) án efa. Inga Karen en með skemmtilegasta hlátur sem þú getur heirt og það er ekki hægt annað en að hlægja með henni ef hún byrjar. það léttir lífið að vera með henni því allt verður skemmtilegra;) Hún er þvílíkt traust og það er sko nauðsynlegt að hafa hana sér við hlið efast um að hægt sé að finna manneskju sem er meira til staðar. Hún er yndið okkar allra sem við dýrkum

Íris Þöll er svo hvað á ég að segja hjartað ;) Hún er ljúf og góð og þvílíkt mikill vinur vina sinna það er á hreinu ;) Hún er falleg að innan sem utna og er svona hin músí manneskjan í þessum hóp mætt ábyggilega segja að við værum svona mest væmnar í góðum skilning þ.e svona soft típur ;) Hún finnur uppá endalaust af uppátækjum og það er sko ekki leiðinlegt að vera með henni skil bara ekki þetta hugmyndarflug. Það er hægt að segja henni allt og þú mátt sko búast við því að hún sé mætt ef eitthvað bjátar á :) knús og koss ;)

Svala er svo litla snúllan okkar ;) Sú manneskja sést ekki öðruvísi en brosanadi hún er sko alltaf í góðu skapi og hlægjandi ;) Hún er samt stór manneskja þó að hún sé lítil og krúttleg. Svala er dramafrí eins og ég kalla það:) Hún er sko ekkert að væla eða gera vesen finnur bara lausn á öllu og stendur fast á því sem henni finnst það valltar sko enginn yfir skvísuna heldur engin ástæða til. Hún er vinur allra og ég held að ekki sé hægt að verða fúll við skvísuna. Hún er með húmor í lagi og maður gæti sko pissað á sig stundum úps talaði af mér hahahhah ;) Hún er einu orði sagt ÆÐI :)

Hrafnhildur snúlla er þvílíkt róleg og góð stelpa ;) Þú getur ekki búist við því að hún geri þér eitthvað held að það sé bara ekki hægt ;) Hún er sko til í allt ;) Hrafnhildur er með allt á hreinu það er ekkert kaos í gangi þar. Hrafnhildur er ævinlega trygg sínum og á hjarta þeirra sem hana eiga að :)
Hún er kannski róleg yfir höfðu en hún kemur svo sannarlega á óvart og er sko ekkert písl :)
Hún er algjört yndi þessi stelpa sem þæginlegt er að hafa nálægt sér. Ef það er eitthvað sem minnir mig alltaf á hana þá er það SÓLBLÓM ;) haha

Eva dúlla er svo seinust í röðinni en hún er svakarlega góð stelpa ;) Vill allt fyrir alla gera og það er sko allt ekkert mál ;) Gerir hitt og þetta fyrir mann án þess að hika og verður sko ekki fúl auðveldlega ó nei þú veist alltaf hvar þú hefur hana ;) Hún er þvílíkt klár í höndunm og er sko enga stund að redda hinu og þessu eða bara búa það til.Hún svooo yndisleg manneskja og var sko góð viðbót í hópinn okkar.

Humm þá er það bara ég það er hálf asnarlegt að lýsa sjálfum sér en ég er voða soft típa sem er einstaklega heppin að eiga þennan æðislega vinarhóp;) Þær eru þær bestu verst hvað þær eru flestar langt frá manni. Maður eyðir árinu í að sakna þeirra og svo rétt sér maður þær.

Jæja held að ég sé að gera met í löngu bloggi ;) love u
bæjó spæjó ;)
Ykkar Sara Natasha

7 Comments:

  • At 25 July, 2006 12:57, Anonymous Anonymous said…

    hey hey
    ;) smá hjálp ég var með myndir sem áttu að koma inn með textanum en ég náði bara þessari einu :( búin að vera í 2 tíma að koma þessu inn en það gerist ekki. Er einhver önnur leið til annað en að gera get image þegar ég er að blogg ???
    Öfga leiðinlegt hvað það er mikið vesen að setja myndir inn :) en nóg í dag;) love u smove u
    Sara Natasha

     
  • At 25 July, 2006 13:52, Blogger Ìris said…

    Flott blogg tetta Sara mín. Gott ágrip tarna á okkur klemmunum öllum. Skemmtileg mynd :) vorum einmitt ad undirbúa date ball tarna man ég, sko ad ÆFA okkur. Gott ad vera vel æfdur á sjálfum deginum.
    Veit tví midur engin trikk til ad koma inn myndum. En er æst í ad sjá fleiri. Kannski ad web masterinn viti einhver rád vid vandanum?

     
  • At 25 July, 2006 14:36, Anonymous Anonymous said…

    Ja, tetta er sko aldeilis blogg. Og ju eg held ad tetta er met sem verdur sint slegid. Endulega reyndu ad koma tessum myndum inn. Eg veit ad tu getur hladid inn forriti sem heitir picasa og ur tvi flutt myndir en ta er hver mynd eins og færsla. Jæja nuna er Nanna adeins eftir ad leggja sitt af morkum en Eva Bjork er sukkuladikula (heitir tad ekki tad annars?) er busy i proflestri.

     
  • At 25 July, 2006 14:40, Anonymous Anonymous said…

    Sveipurinn a hari Nönnu og Hrafnhildar er einstaklega mikid i anda Bold and the Beautiful.

     
  • At 25 July, 2006 14:46, Blogger Ìris said…

    já segdu, algerlega bold and the beautiful. Smart.

     
  • At 25 July, 2006 20:04, Blogger Sólveig said…

    haha.. æðislegt. Já við erum svona æðislegar. Það eru engar ýkjur hér. Já þetta með myndirnar ætti ekki að vera neitt stórmál held ég..? tekur bara smá tíma ef þær eru stórar...

     
  • At 12 August, 2006 02:56, Anonymous Anonymous said…

    Very pretty design! Keep up the good work. Thanks.
    »

     

Post a Comment

<< Home